Dánaraðstoð felur í sér að einstaklingur fái aðstoð við að binda enda á líf sitt að eigin skýrri og sjálfviljugri ósk.
Dánaraðstoð er ekki:
- líknarmeðferð eða lífslokameðferð
- að hætta eða hefja ekki lífslengjandi meðferð
- að gefa óhóflega stóra skammta verkjalyfja í þeim tilgangi að flýta dauðastundinni
- að binda enda á líf einstaklings án skýrrar og sjálfviljugrar óskar hans
- úrræði sem hægt er að grípa til vegna ófullnægjandi heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu eða sálfræðilegs stuðnings
