Sjálfræði (e. autonomy) hefur lengi verið hornsteinn í heilbrigðissiðfræði og er eitt af lykilhugtökum í umræðunni um dánaraðstoð.
Greinasafn
Formenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og Læknafélags Íslands (LÍ) birtu grein á Vísi 11. júlí síðastliðinn þar sem þær vöruðu við því að draga of víðtækar ályktanir af könnun um dánaraðstoð sem Gallup framkvæmdi fyrir heilbrigðisráðuneytið árið 2023.
Umræða um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu vekur spurningar um hvaða áhrif aðild gæti haft á íslensk lög og samfélag. Ein þeirra er hvort Evrópusambandið hafi sameiginlega stefnu um dánaraðstoð og hvort aðild hefði áhrif á möguleika Íslands til að setja eigin löggjöf um hana.
Í umræðunni um dánaraðstoð er oft talað eins og hún sé annaðhvort til eða ekki til, hafi átt sér stað eða ekki. Þessi tvískipting er auðveld sýn á raunveruleikann en stenst illa nánari skoðun.
Umræða um dánaraðstoð verður aldrei einföld, og hún á ekki að vera það. Hún krefst þess að við sem samfélag horfumst í augu við spurningar um líf og dauða, sjálfræði og mannhelgi, mannlega reisn og ábyrgð okkar gagnvart viðkvæmum hópum.
